Íslenska þjóðin stendur frammi fyrir miklum vanda og sumir eru svo gott sem bugaðir af ástandinu. Á slíkum tímum er mikilvægt að rifja upp og minna sig á hver Guð er og hvað hann getur gert í óvinnanlegum kringumstæðum.
Ein af hetjum Biblíunnar er Davíð konungur Ísraelsmanna. Hann var valinn sem konungur af Samúel spámanni Guðs en það liðu mörg ár áður en hann settist í hásæti ríkisins. Á leiðinni þangað lenti hann í ýmsum þrengingum og sumar þeirra voru algerlega yfirþyrmandi. Við getum hins vegar lært mjög mikið af Davíð og viðbrögðum hans.
Ein af mínum uppáhaldssögum fjallar um kringumstæður sem hefðu brotið nánast hvern sem er. Davíð fór í hernað með sínum fylgismönnum og þegar þeir koma heim aftur voru óvinir þeirra búnir að brenna öll húsin þeirra og ræna öllum konum og börnum Davíðs og liðsmanna hans. Eðlilega voru þeir allir algerlega bugaðir. Davíð hins vegar grípur til þess ráðs að "hressa sig í Drottni". Síðan fer hann fram fyrir Drottinn og spyr hann ráða, og Guð segir honum að fara á móti óvinum sínum og endurheimta allt sem stolið var frá honum. Davíð tekur ráðum Drottins og fer og nær í það sem stolið var frá þeim og síðan halda menn heim glaðir í bragði.
Mín einlæga hvattning til okkar allra er að HRESSA SIG Í DROTTNI og leyfa Guði að tala til okkar og framkvæma síðan það sem Drottinn segir okkur að gera.
Njótið lífsins vinir og hressum okkur í Drottni!!!
Recent Comments