Ég starfa sem trygginga- og lífeyrisráðgjafi hjá KB ráðgjöf sem er að hluta til í eigu Kaupþings. Sem slíkur hef ég aðsetur í Háaleitisútibúi bankans.
Ég er fæddur í desember 1967 og því barnungur. Árið 1987 kvæntist ég æskuástinni minni, Katrínu Þorsteinsdóttur og eigum við 4 börn. Kata mín er leikskólakennari og félagsráðgjafi og starfar sem slík hjá sveitarfélaginu Árborg. Það hefur verið einhver mesta Guðsblessun í lífi mínu að fá að kynnast og eiga hana Kötu og hún er lang besti vinur sem ég hef nokkurtímann átt. Við njótum þess sannarlega að vera saman og eitt af okkar helstu áhugamálum eru ferðalög og við reynum að nýta hvert tækifæri sem við fáum til að ferðast.
Þetta eru börnin okkar:
Thea er 19 ára og er í námi í Stokkhólmi.
Birgir Steinn er 17 ára og stundar nám við Fjölbrautarskóla Suðurlands
Jósúa er 14 ára og er í 9. bekk í Vallaskóla á Selfossi.
Elín Rut er 10 ára og er í 5. bekk í Vallaskóla.