Þetta hefur ekki gerst í mörg ár! Margir hafa örugglega beðið eftir þessari stund. Og núna er hún upprunninn. Theodór Birgisson er orðlaus!
Ég horfði á formann Samfylkingarinnar í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi hjá Stöð 2. Umræðuefnið var ummæli hennar um störf Ríkislögreglustjóra og embætti hans. Konan sló svo úr einu í annað og viðhafði þess háttar pólitíska frasa að mér varð um og ó. Ég ætla ekki að reyna að lýsa skoðun minni á þessi viðtali, því að mig hreinlega skortir orð til þess. Eitt er þó víst að ekki jókst hróður formannsins við þennan afleita málflutning.
Þar sem flest bendir til að Ingbjörg Sólrún verði forsætisráðherra þjóðarinnar við næstu Alþingiskosningar eykst áhugi minn á námi á erlendri grundu til mikilla muna. Með því móti getur maður reynt að gleyma þeim skrípaleika sem konan mun bjóða þjóðinni uppá.
Pólitík - hver skilur hana eiginlega!
Comments