Fyrir 3 árum komust vísindamenn í Ameríku að því að New Orleans væri
dauðagildra. Ef borginn yrði fyrir kröftugum fellibyl væru varnir borgarinnar úr 1 af 3 hugsanlegum leiðum óveðurins ófullnægjandi. Menn vildu að sjálfsögðu lagfæra þetta en alríkisstjórnin í Washington heimilaði ekki fjárveitingar í þau verkefni. Fellibylurinn Katrín kom einmitt úr þessari óvörnu átt með skelfilegum afleiðingum.
Ég er þeirrar skoðunnar að erfitt - ef ekki hreinlega ógerlegt - sé að
kenna einhverjum um hvernig fór eða draga menn til ábyrgðar. Atburðurinn er hrikalegar nátturuhamfarir sem kostaði mörg hundruð mannslíf, ef ekki þúsundir.
Mér finnst Georg Bush því frekar grunt þennkjandi þegar hann segist axla
pólítíska ábyrgð á því sem fór úrskeiðis í fellibylnum. Með því er að hann að viðurkenna að embætti hans hafi gert mistök sem kostuðu mörg mannslíf. Það er ekki hægt að axla þá ábyrgð öðru vísi en að segja af sér embætti sínu og fela þjóðinni síðan að finna annan mann í sinn stað. Það mun bandaríkjaforseti að alveg örugglega ekki gera í þessu tilfelli. Það er því grátbroslegt að heyra Bush lýsa ábyrgðinni á sínar hendur - en skorast samstundis undan eðlilegum afleiðingum þeirrar ábyrgðar.
Ég er ekki með þessu að segja að Bush hafi brugðist. Það er ekki mitt að dæma um það. Ef hann hins vegar heldur því fram sjálfur verður hann að standa undir þeim dómi. Annars verða seinnitíma yfirlysingar hans jafn innihaldslitlar og þessi er orðin núna.
Þannig sé ég þetta alla vega.
Comments