My Photo

October 2008

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Gestir síðan
21. ágúst 2005

Blog powered by TypePad
Member since 08/2005

« Jafnrétti á jörð | Main | Danske bank »

Comments

Kolla

Sæll Teddi ég tel að við verðum í mun minni hættu á að verða fornarlömb hriðjuverka hópa hér eftir að varnarliðið er farið af landinnu. Samt vildi ég gjarnan hafa björgunar þyrlurnar hér áfram vegna þess að þær hafa oft sannað gildi sitt hér.

Kiddi Klettur

Ég veit þetta ekki. Hef ekki vit á þessu. Sé illa tilgang hjá einhverjum úti í heimi að ráðast hingað inn. Hafa ekkert að sækja. En dettur þó í hug samlíkingin á því að ef einhver sem öllu jafna myndi aldrei stela en sæi veski inní opnum bil að nóttu og þætti þetta of auðveld "bráð" til að sleppa henni, léti undan freistingunni. Sama skapi gætu einhverjir hottintottar sem alla jafna hefðu engan hug á að koma hingað í óprúttnum tilgangi, sæu allt í einu færi sem væri of gott til að sleppa, þá er herinn væri farinn. En sennilega eru líkurnar langsóttar og lítið haldbærar. Held þó að ef ég ætti að velja um herinn eða brotthvarf hans myndi ég velja herinn. Og þar með þyrlurnar góðu og dollarana fínu sem flæða inn í landið. En hvað veit ég svo sem um þetta mál?

Teddi

Ég er sammála þér Kolla með þetta. Eins og ég hef áður sagt er fjarvera þyrlanna alvarlegsta afleiðing brotthvarfs varnaliðsins.

noname

Ég held að við séum þannig staðsett í heiminum að það vilji einhverjir ná yfirráðum yfir stöðinni ef USA fer af landi brott,það er nefnilega gott að millilenda hérna.Ég sé svo ekki alveg hvernig þessi þjóð ætlar að fara að því að reka þennan völl,hver borgar snjómoksturinn á brautinni og þ.h. ef herinn fer,við getum ekki einusinni komið þyrlunum okkar í loftið.

Erling

Best að bendla okkur sem minnst við stríðsherrann í vestrinu held ég. Við ættum að halda fast í gamla stimpilinn okkar að vera friðelskandi þjóð, þá held ég að við fáum gott næði hér norðufrá.

kv E

Heiða Björk

Já það er vand með farið að kommenta á þetta Teddi minn en ég ætla samt að reyna. Ef að það er þess vilji sem öllu ræður þá getur hver sem er ráðist hingað inn til okkar svo að við skulum vera dugleg að biðja hann ynislega pabba okkar á himnum um að vernda okkur ef hann telur að við þurfum utanað komandi hjálp þá sendir hann hana til okkar. Nú ef ekki þá þurfum við engar áhyggjur að hafa. Ekki satt þið öll?

Teddi

Jú Heiða, það er eina raunverulega vörnin okkar að treysta Drottni fyrir lífi og heilsu.

Biggi

Helsta "hernaðarlega" ógnin á okkar tímum eru hriðjuverkahópar. Það er smáborgaraháttur að hugsa að við séum eitthvað undanskilin þeirri ógn. Á meðan við erum vestræn þjóð erum við óvinur þessara öfgahópa. Hvernig við ætlum að verjast er sem betur fer ekki mitt mál en ég er sannfærður um að við þurfum að hafa einhverjar varnir. Það er kjánalegt að henda reykskynjaranum þó svo að það hafi aldrei kviknað í hjá manni. En ég held samt að við séum stærri þjóð en svo að við getum ekki mokað snjó af einhverri flugbraut.

Hjörtur

ég segji bleikur

Siggi

Sæll Teddi minn – Siggi úr síðasta alfanámskeiði hérna meginn.
Það er alveg ljóst að fjórar f-15 orustuþotur gera ekkert í þeirri vá sem nú er í gangi í heiminum þannig að farið hefur fé betra. Ég er óhress með að herinn fari en líka óhress að við skulum leggjast á hnén og fara að betla – bara út af þyrlunum. Við höfum alveg efni á að útbúa góða þyrlusveit hér með þrem þyrlum. Upp í hugan koma hundruð milljóna sóunarfyllerí á borð við hlaðborð í Frakklandi undir yfirskini landkynningar (300,000,000 kr), sendiráð út um allar trissur( +1,000,000,000. kr), jafnvel tónlista og ráðstefnu hús (20,000,000,000.). Hverjir ættu að ráðast á ísland í dag ? Færeyjingar eða Grænlendingar? Nú eða norðulandaþjóðirnar? Kannski kanadískir innúítar kæmu róandi yfir hafið gerðu árás. Hryðjuverkamenn eru almennt ekki vel upplýstir og ég efast um að þeir viti af tilvist norður evrópu – hvað þá Íslandi og ef þeir myndu frétta af okkur þá kæmust þeir aldrei hingað. Menn tala um fælingamátt sem felst í þessum þotum…..segjum að ef rússar fengju aukna þörf fyrir “útrás” halda menn þá að þeim fallist hendur vegna þess að hér séu fjórar fimmtán ára gamlar þotur?? Neipp. Besta ráðið er hlutleysi, og þá meina ég alvöru hlutleysi, ekki hlutleysi eins og Svíar sýndu í síðari heimstyrjöldinni. Hryðjuverka elítan mun ekki nenna að leita að þessu landi okkar á landakorti – hvað þá að dröslast hingað.

The comments to this entry are closed.