Tryggingaráðgjöf Theodórs lokuð vegna veðrus. Þannig hefði auglýsingin mín á föstudaginn var getað hljómað. Kata mín átti frí frá hádegi á föstudag og þar sem veðurspáin var svo góð ákvað ég að taka mér líka frí. Þó svo að veðrið hafi ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir, hvorki í gær né á föstudaginn, hafa þessir tveir dagar verið mjög yndislegir. Á föstudaginn fórum við meðal annars í húsdýragarðinn með tvö yngstu börnin okkar (hin voru að vinna) ásamt Betu mágkonu minni og Detlief svila mína og þeirra börnum. Beta er gift germönskum manni og þau hafa búið í Þýskalandi í rúmlega 20 ár en eru í heimsókn á Íslandi þessa dagana. Það var mjög gaman að eiga tíma með þeim og þó að veðrið hafi ekki verið upp á marga fiska var samt tiltölulega hlýtt í garðinum. Um kvöldið fórum við síðan austur á Selfoss í heimsókn til Erlu sytur minnar og Erlings. Það var mjög notalegt. Fengum góðan mat og áttum yndislegt samfélag við þau til að ganga tvö um morgunin. Í gær fórum við svo austur á Apavatn þar sem stór hluti af stórfjölskyldunni minni var í útilegu. Þar áttum við siðan frábæran dag með flestum systkinum mínum og þeirra fjölskyldum og gaman að sjá hvað Sunnuhlíðarfjölskyldan er alltaf að stækka. Það bætast við tengdabörn og barnabörn með skemmtilegum hraða. Við keyrðum síðan heim seint í gærkvöldi og það var notalegt að þurfa ekki að sofa í tjaldi þegar maður á þetta líka fína tempur rúm heima fyrir. Í dag er svo einföld dagskrá: AÐ NJÓTA DAGSINS! Ég get ekki ráðlagt þér neitt annað en það sem ég tel best fyrir sjálfan mig í mitt fólk. Þess vegna ráðlegg ég þér að herma bara eftir mér og njóta dagsins líka.
Guð gefi ykkur öllum góðan dag.
Comments