Við Kata mín erum þessa dagana stödd í Redding í Californíu. Það verður að segjast að þrátt fyrir þau forréttindi að eiga nokkra daga í fríi fjarri öllum daglegum skyldum þá hafi stór hluti af hjarta okkar orðið eftir heima hjá krökkunum okkar og litla Theodóri Ísaki, afastráknum mínum.
Við byrjum á að eiga hér vestra einnrar viku frí en förum svo á vegum Mozaik á mjög spennandi námskeið fyrir leiðtoga í barnastarfi. ég segi ykkur meira frá því þegar nær dregur.
Við flugum á föstudaginn frá Keflavík til New York og áttum síðan að fara beint þaðan til San Fransisco þar sem við ætluðum að gista eina nótt. Þegar við komum til NY var hins vegar búið að fella niður flugið okkar til San Fran þannig að við þurftum að gista í NY í staðinn. Fyrir mistök fór hins vegar ALLUR farangurinn okkar beint til San Fran með flugi sem hafði seinkað fyrr um daginn og fór því um sama leyti og okkar flug átti upprunarlega að fara. Við vorum því ekki með nein föt til skiptanna eða snyrtidót með okkur í NY og það verður að segjast að það var upplifun sem mig langar ekki að endurtaka. Að þurfa að morgni að klæða sig í óhreina skyrtu og óhreinar nærbuxur er ekki spennandi!!! Við fengum far með fyrstu vél dagsins kl. 06:00 á laugardagsmorgun. Við vorum svo heppinn að það var lítil biðröð í flugtak hjá okkur þannig að við þurftum ekki að bíða nema í 45 mín á brautarendanum þar til vélin fór í loftið. Síðan var svo mikill mótvindur að vélin var rúmman klukka lengur í loftinu en gert hafði verið ráð fyrir. Við sátum því í þröngri flugvél í rúmma 8 tíma þennan daginn. Kata náði að sofa nánast alla leiðina en ég náði því miður ekki að festa blund. Þegar til San Fran var komið leigðum við okkur bíl og keyrðum síðan aðeins um San Fran. Fórum meðal annars um agalegustu brekkur sem ég hef nokkurn tíman keyrt um. Það var sannarlega skemmtileg upplifun. Síðan fórum við yfir Golden Gate brúnna á leið okkar norður til Redding. Aksturinn þangað tók rétt rúmma 4 tíma með einu matarstoppi. Kata náði sem betur fer að sofa góða part af bíltúrnum norður eftir. Þegar við komum til Redding um kl. 16:30 að staðartíma lagði kata mín sig aðeins. Hún hefur sennilega verið þreyttari en hún gerði sér grein fyrir því að hún vaknaði ekki fyrr en kl. 05:30 næsta morgun!
Sunnudagurinn fór síðan í samkomur í Bethel kirkjunni en við náðum 3 samkomum á einum degi sem er persónulegt met fyrir okkur ef ekki eru tekin með þau fjölmörgu mót sem við höfum sótt um ævina. Þetta voru allt frábærar samkomur sem við nutum í botn. Í dag - mánudag - höfum við síðan ekki gert neitt nema legið í sólinni, lesið, sofið og borðað og síðan talsvert af því sem við segum engum frá.
Ég segi ykkur meira frá ferðinni á morgun. Njótið lífsins vinir - það er sannarlega Guðs gjöf til okkar.
Recent Comments