Það er engum ofsögum sagt að það hafi verið frekar þéttskipuð dagskrá hjá mér frá því að ég kom heim frá USA um daginn. Þar blandast saman annríki í minni launuðu vinnu og krefjandi verkefni í kirkjunni okkar. Þar er vetrarstarfið að fara í gang á morgun með samkomu kl. 14:00, en það er fyrsta sunnudagssamkoman okkar. Í framtíðinni verðum við því bæði með samkomur á miðvikudögum kl. 20:00 og á sunnudögum kl. 14:00. Barnastarfið verður á sunnudögum og það hefst á morgun. Það gerist ekki neitt af sjálfu sér og því hefur það tekið talsverðan tíma að koma þessu öllu heim og saman. Mozaik nýtur þess að þar er gríðarlega margt hæfileikafólk sem hefur unnið þrekvirki á síðustu dögum við undirbúining vetrarstarfsins.
Í dag var sem sagt fyrsti alvöru frídagurinn síðan við komum heim. Við nutum þess að sofa út og hvíla okkur. síðan voru við svo heppinn að Kiddi og Ásta komu í kaffi til okkar og Erla og Erling litu líka við. Það eru svo mikil forréttindi að eiga systkini sem eru vinir mans og það var mjög gaman að sitja og spjalla við þessa góðu vini.
Ég ætla það sem eftir lifir kvölds að njóta þess að sitja í faðmi fjölskyldunnar og njóta augnabliksins. Ekki ólíklegt að ég reyni líka að hjálpa fólkinu mínu að glíma við þessar kaloríur sem er hér á borðum. Það væri ekki sanngjarnt af mér að láta þau sitja ein uppi með alla þessa vinnu. Enda er ég ekki frá því að ég hafi grenst í morgun.....
Njótið lífsins vinir - það er Guðs gjöf til okkar!
Recent Comments