...að vakna á réttum tíma og drífa mig í vinnuna í dag. Ég er svo lánsamur að fá að vinna vinnu sem mér þykir skemmtileg þó að ég vildi frekar vera í fullu starfi sem prestur. Verkefnin voru mörg og krefjandi enda tekur alltaf smá tíma að koma "vélinni í gang" eftir frí. En allir tóku mér vel og það var gaman að hitta vinnufélagana aftur enda er ég umvafinn frábærum vinnufélögum.
Barnastarfið í kirkjunni okkar er að byrja á næstu dögum og við erum einnig að byrja samkomur á sunnudögum og verður sú fyrsta þann 24. ágúst, en allar nánari upplýsingar um það eru á síðunni okkar www.mozaik.is
Kirkjan hefur verið í góðum og stöðugum vexti og það hefur verið mjög gaman að vinna með þeim frábæru einstaklingum sem þar taka þátt. Við munum halda áfram með miðvikudagssamkomurnar þó að sunnudagarnir bætast við. Á föstudaginn verður við með namskeið fyrir þá sem ætla að vinna með okkur í barnastarfi kirkjunnar og þar ætlum við að miðla því sem við lærðum í USA um daginn. Þó að námskeiðið sé ætlað fyrir barnastarfsfólk er það í raun mjög gott fyrir alla foreldra og afa og ömmur. Þeir sem vilja kynna sér málið betur er velkomið að senda mér póst á theodor@mozaik.is
Njótið lífsins vinir - það er Guðs gjöf til okkar.
Comments