...ég er bara ekki að hlusta á hana! Nei ég segi bara svona.
Ég fór snemma að sofa í gær, það er að segja snemma í morgun. Birgir Steinn sonur okkar fyllti árið í gær og það komu nokkrir vinir í kaffi í gærkvöldi. Partýið endaði á mikilli úthellingu Heilags Anda og við vorum langt fram á nótt að biðja, lofa Guð og tala vilja Guðs inn í líf hvers annars. Þetta var algerlega magnað! Birgir Steinn sagði að hann hefði aldrei átt yndislegra afmælispartý. Reyndar var þetta ekki hin eiginlega afmælisveisla - bara svona forréttur!
Ég stillti vekjarann samviskusamlega og tók svo að mér að slökkva á honum við fyrsta hanagal í morgun. Þegar ég loksins raknaði úr rotinu var klukkan orðin 12:23 og mér var verulega brugðið. Ég held að ég hafi síðast sofið yfir mig á seinnihluta síðustu aldar. Ég tók því yfirvegaða ákvörðun og lengdi sumarfríiið mitt um einn dag og var heima allan daginn með fólkinu mínu. Það var yndislegt. Ég vinn þannig að vinnu að ég gat líka gripið í nokkur verkefni inná milli. Á morgun mun vinnan kalla aftur og þá hef ég ákveðið að hlýða kallinu.
Njótið lífsins vinir og alls þess sem Guð á fyrir okkur!
Comments