Ég hef eins og aðrir landsmenn fylgst með fréttum af fjármálageiranum með miklum áhuga undanfarið. Minn áhugi er tvíþættur, ég er bæði viðskiptavinur og starfsmaður fjármálafyrirtækis.
Eitt orð er notað aftur og aftur í fréttum, ekki síst í dag í tengslum við yfirtöku ríkisins á Glitni. Það er ítrekað talað um ríkisvæðingu bankans og "þjóðnýtingu" hans. Það er mikill miskilningur hjá fréttamönnum að Glitnir sé orðin ríkisbanki. Glitnir er almennt hlutafélag sem ríkið á stærsta hlutann í. Það er allt annað en ríkisbanki. Annað orð sem ég skil engan vegin er orðið "Þjóðnýting" bankans. Ég sé ekki hvernig þjóðin er að nýta bankann! Einu not þjóðarinnar af honum er að fá að borga brúsann fyrir stjórnendur hans. Það er reyndar ekki heldur þannig að þjóðin sé að tapa á þessu inngripi. Við eigum þá öll orðið hlut í banka sem mun alveg klárlega ná sér aftur á strik og þá fáum við ávinningin af þessari ákvörðun yfirvalda. En þjóðnýting getur varla talist rétt hugtak yfir þessa aðgerð.
En hvað veit ég svo sem um þessi mál. Ekki er ég fjárfestir, heldur venjulegur einstklingur sem fer í Jóhannesarbúð með hýruna mína og kaupi mjólk og hveiti fyrir fólkið mitt.
Njótið annars lífsins vinir mínir - líka þið sem eigið hlutafé í Glitni!
Comments