Mánudagar eru yndislegir! Dagurinn markar upphaf nýrrar vinnuviku og á tímum sem þessum eru forrréttindi að hafa vinnu og geta framfleitt sér og sínum. Það er rólegt hér á sveitasetrinu þessa stundina. Kata er farin til vinnu og Jósúa og Elín Rut í skólann. Sjálfur ætla ég að bíða eftir Theu og nafna mínum heim frá Kanada áður en ég keyri í vinnu. Þau lentu í Keflavík skömmu fyrir sjö og eru á leiðinni heim. Mikið hlakka ég til að hitta þau bæði.
Vikan er hlaðin eins og alltaf hjá okkur Kötu minni. Aldrei logn í kringum okkur! Það er talsverð áskorun að sameina fullt starf fyrir KB ráðgjöf og sívaxandi umsvif Mozaik. Staðan er þannig núna að ég er að vinna álíka margar vinnustundir fyrir kirkjuna og bankann. Kirkjan hefur þó ekki enn þá bolmagn til að hafa presta á launum og þá er mikilvægt að hafa góða vinnu annarstaðar til að skaffa brauð á borðið og þak yfir höfuðið.
Njótið dagsins vinir - hann er Guðs gjöf til okkar!
Vá hvað Guð á eftir að gera margt magnað með Mózaik og starfið á Íslandi!
Við erum svo rétt að byrja....
WOW! Þetta er allt of spennandi!
Posted by: Hrund | September 29, 2008 at 05:40 PM