Bloggleysi mitt hefur náð alveg nýjum hæðum þegar pabbi minn er farinn að kvarta yfir skrifleysi. Og þó svo að bæði Elfar vinur minn og Erla systir kvarti - og ég met þau bæði mjög mikils - þá þori ég ekki annað en bregðast við áskorun pabba um að skrifa meira.
Ég fór um síðustu helgi í veiðitúr vestur í dali með góðum vinum og átti mjög góða helgi. Ég mokveiddi. Ég veiddi jarðepli upp úr pottinum á eldavélinni, ég veiddi nammi úr bónusbokanum og ég veiddi sögur uppúr Kidda bróðir og Halldóri Lár. Þetta var stórskemmtilegt. Ég fann meðal annars spennandi verslun þarna vestra. Búðin heitir Skriðuland er svona "tveir fyrir einn" markaður. Þú borgar tvo hluti og færð einn!!! Þetta var svo dýr verslun að þegar ég þurfti að fara aftur daginn eftir fyrstu heimsókn mína þangað bað ég ég Kidda bróðir að koma með :-)
Í dag höfum við fjölskyldan notið þess að vera saman, það er að segja þau okkar sem eru á Íslandi. Birgir Steinn hefur vetrarsetu í Kaliforníu og líður þar mjög vel og Thea og nafni minn eru í Toronto á móti í TACF kirkjunni hjá John og Carol vinum okkar. Hún fór ásamt 70 manna hópi sem Guðbjartur og Sigga Helga eru í fylkingarbrjósti fyrir. Við heyrðum í Birgi Steini áðan og erum núna að bíða eftir því að Thea okkar hringi heim, en það verður á næstu mínútum.
Jósúa okkar fyllir sitt 15. ár í dag og afmælisdagar eru alltaf sérstakir hjá okkur. Við fórum inní borgina í morgun og höfum verið þar í allan dag. Fórum meðal annars í kaffi til pabba og mömmu og hittum þar fyrir Kidda og drengina hans, en Ásta var á Jesú konu móti í Fíladelfíu. Það er ómetanlegt ríkidæmi að eiga góða fjölskyldu og njóta samveru við hana. Síðan fórum við út að borða með krakkana okkar og síðan í bíó. Mjög gaman. Afmælið hans Jósúa míns verður síðan þegar Thea er komin heim aftur. Birgir Steinn hringdi í bróður sinn til að óska honum til hamingju með daginn. Við Kata mín erum sannarlega blessuð með börnin okkar og yndislegt að finna að þau eru öll svo miklir vinir. Jósúa hefur verið okkur endalaus uppspretta gleði og ánægju frá því að við fengum hann í hendurnar fyrir réttum 15 árum. Jósúa minn - innilega til hamingju með daginn. Þú ert einstakur og frábær drengur og ég er MJÖG stolltur af þér!!!
Njótið lífsins vinir mínir - það ætla ég alla vega að gera!
VELKOMINN TIL BAKA og innilega til hamingju með ungana
kv.Elfar
Posted by: Elfar | September 28, 2008 at 10:11 PM
Ég segi nú líka VELKOMINN TIL BAKA ! Ég hef sakknað þín HJÚTZ ;-) Til hamingju með já.. bara allt. Skelltu einum kossi á hana Kötu okkar & bara á alla línuna, frá okkur hér á skaganum.
kveðja Silja skagakjéddling
Posted by: Silja | September 28, 2008 at 11:38 PM