Mikið er þetta fallegur dagur. Jörðin snævi þakin og allt svo hreint og bjart.
Það er ekki erfitt að taka þann pólinn í hæðina að Guð sé að segja við okkur að þrátt fyrir allt öngþveiti í fjármálageiranum þá geti hann komið með kærleika sinn og breytt yfir klúðrið okkar og gert allt nýtt og fallegt aftur. Og það bæði getur hann og gerir! Það er þörf á því á þessum tímum að við leyfum Guði að tala inn í kringumstæður okkar og leiða okkar inní þær aðgerðir sem við þurfum að framkvæma. Þjóðstjórn eða ekki - ráðamenn ættu nú sem aldrei fyrr að biðja þann sem allt veit að ráðleggja sér. Erfiðleikar hafa aldrei komið Guði í klandur, ALDREI!
Ég ætla að njóta þess að vera til í dag. Ég ætla að njóta þess að elska fjölskylduna mína og vini mína og njóta þess að njóta kærleika þeirra. Ég ætla að njóta þess að vera á lífi og hafa heilsu til að njóta lífsins. Ég ætla að njóta þess að fá mér gott kaffi og súkkulaði mola með því. Ég ætla að njóta þess að hlakka til kvöldsins vitandi að ég fæ að sofna án þess að þurfa að óttast stríðsátök og hörmungar. Ég ætla að njóta þess í dag að vera elskaður af Guði og fyrir þau forréttindi að fá að vera Íslendingur. Og þar sem ég veit að pabbi minn les þessar línur á eftir þá ætla ég að njóta þess að koma við í kaffi hjá pabba og mömmu áður en ég keyri heim á sveitasetrið mitt á eftir.
Vinir mínir - gerið eins og ég og njótið þess að vera til. Lífið er Guðsgjöf!!!
Comments