Kanada er annað víðlendasta ríki heims en nafnið KANADA er upprunalega tekið úr Indíánamáli og þýðir "smáþorp". Það var franskur ævintýramaður sem notaði fyrst orðið Kanada um svæðið sem Québec-borg stendur nú.
Þann 3. apríl árið 1973 var brotið blað í samskiptum jarðarbúa. Þá var tekinn í notkun í fyrsta sinn tækni sem flestir Íslendingar líta núna á sem sjálfsagðan hlut. Það var Bandaríkjamaðurinn Martin Cooper sem þennan dag stóð á götuhorni í New York og hringdi fyrsta símtalið úr farsíma sem hann hafði smíðað sér.
Vissir þú að tyggigúmmi er blanda af fimm hlutum af gerviefninu "kátsjú" á móti einum hluta af hrágúmmí. En þar sem þessi blanda er algerlega bragðlaus er sætuefnum blandað saman við hana til að gera vöruna seljanlegri.
Vilji maður fá sér harðsoðið strútsegg í morgunmat þarf maður að fara snemma á fætur. Eggið þarf nefnilega einn og hálfan tíma til að soðna. Strútsegg eru að meðaltali 1,5 kg að þyngd.
Íslendingar tala flestir alla vega eitt tungumál annað en Íslenskuna. Flest tungumál innan einnar þjóðar er þó talað Papúa-Nýju Gíneu en þar eru töluð 869 sjálfstæð tungumál. Þeim sem finnst það fullmikið ættu því frekar að flytja til Sviss ef þeir hyggja á brottflutning frá Íslandi en þar eru töluð 4 opinber tungumál.
Með hugtakinu "þriðji heimurinn" er átt við fátækustu ríki veraldar. "Fyrsti heimurinn" eru vestrænu ríkin með alla sína velmegun en hugtakið "annar heimurinn" var notað yfir kommonistaríkin. Þar var hugtakið hins vegar aldrei notað enda höfðu þeir engan áhuga á að vera í öðru sæti í einu né neinu.
Þeim sem þykja gosdrykkir góðir eiga breska efnafræðingnum Joseph Priestley (1733-1804) mikið að þakka. Það var hann sem tók eftir því að þegar verið var að brugga myndaðist þungt gas yfir spírandi kornið. Þetta reyndist vera koltvísýringur og þegar Priestley leysti hann upp í vatni fékk vatnið afar sérkennilegan keim. Þannig varð uppruni gosdrykkjaneyslu jarðarbúa.
Fyrir hvert aukakíló sem fullorðinn karlmaður ber utan á sér þarf hjartað að reyna aukalega á sig eins og sem samsvarar því að dæla blóði um æðar viðkomandi vegalengdina frá New York til San Fransisko - DAGLEGA.
Fyrsta borgin í heiminum til að telja meira en milljón íbúa var Róm, en árið 133 f.kr. náði borgin þessu marki. London náði þessum íbúafjölda árið 1810 og New York árið 1875. Í dag eru rúmlega 300 borgir í heiminum með meira en milljón íbúa.
Blogg er orðin afar vinsæl tómstundariðja hérlendis sem erlendis. Orðið BLOGG er samsett orð úr ensku orðunum Web Log eða netfærslur, sbr. weBLOG og síðan bætum við Íslendingar við einu G-i.
Recent Comments