Nemandi í samvinnuskólanum á Bifröst sótti um vinnu sem afgreiðslumaður í Kaupfélagi út á landi. Þetta var svona alvöru kaupfélag þar sem hægt að var fá allt milli himins og jarðar. Kaupfélagsstjóranum leist vel á unga manninn þótt hann væri óreyndur og ákvað að ráða hann til reynslu. Hann sagði unga manninum að mæta næsta morgun og um kvöldið myndi hann síðan ákveða hvort hann fengi vinnuna eða ekki.
Kvöldið eftir spurði kaupfélagsstjórinn unga manninn hvernig hefði gengið og hvað hann hefði afgreitt marga. "Bara einn" sagði drengurinn. Þetta fannst kaupfélagsstjóranum ekki mikið ogspurði hvað hann hefði selt fyrir mikið. "Fimm miljónir, eitthundrað níutíu og þjúþúsund" sagði afgreiðslumaðurinn við kaupfélagsstjórann.
"Hvað seldir þú honum eiginlega", spurði kaupfélagsstjórinn hissa? "Jú, sjáðu til" sagði drengurinn. "Fyrst seldi ég honum lítinn öngul, síðan seldi ég honum miðlungsstórann öngul, þá stóran öngul, svo veiðistöng og síðan spurði ég hann hvar hann ætlaði að veiða. Hann sagðist ætla að veiða í vatninu og þá sagði ég honum að hann þyrfti að bát og seldi honum plastbát með 40 hestafla utanborðsmótor. Þá sagði maðurinn að hann gæti aldrei flutt bátinn á Daihatsuinum sínum svo að ég fór með hann í véladeildina og seldi honum nýjan Land Rover".
Nú var andlitið hálfdottið af kaupfélagsstjóranum og hann sagði: "Maðurinn kemur hér inn til að kaupa einn litinn öngul og þú selur honum bæði bát og bíl!"
"Nei, nei" sagði strákurinn. "Hann kom hingað til að kaupa dömubindi handa konunni sinni og ég sagði við hann að fyrst helgin væri hvort eð er ónýt hjá honum væri eins gott fyrir hann að fara að veiða....
Njótið dagsins vinir mínir - hann er Guðs gjöf!
Recent Comments