Það er svo margt sniðugt sem ungviðið lætur út úr sér. Um daginn sagði Elín Rut dóttir mín (9 ára) mér frá því að frændi vinkonu hennar væri "lífshættulega dáin". Þegar málið var krufið til mergjar kom í ljós að hann hafði gert eitthvað sem var virkilega hættulegt. Mér fannst þetta mjög skondið orðatiltæki.
Njótið dagsins og passið ykkur á að gera ekkert sem gæti gert ykkur lífshættulega dáin.
Það að bílinn sé kominn að endimörkum möguleika sinna má sjá af því að á liðnu ári hafa ekki komið fram neinar grundvallarbreytingar á honum. Vísindaritið Scientific America, 2. janúar 1902.
Ég er þreyttur á öllum þessum vísindum. Við höfum eytt í þau milljónum á síðustu árum og það er kominn tími til að hætta þessu. Þingmaðurinn Simon Cameron í ræðu í öldungadeild Bandaríkjaþings 21. febrúar 1861.
Recent Comments