Það líður að kosningum og fólk þarf að fara að gera upp við sig hverjum það treystir til að stjórna landinu. Stjórnmálamenn keppast við að vinna hylli kjósenda og útskýra af hverju við ættum að kjósa þá. Undanfarið hafa Vinstri græn auðveldað mér mjög þá einörðu ákvörðun að kjósa ekki þann flokk.
Í gær var Ögmundur í fréttum að kynna átak til að eyða fátækt á Íslandi. Sagði hann að það myndi kosta um 12 milljarða. Ég er að sjálfsögðu sammála Ögmundi um nauðsyn þess að eyða fátækt en það er undarlegt að sá flokkur sem leggur jafn ríka áherslu á það verkefni skuli á sama tíma markvisst auka fátækt á Íslandi með því að lofa að stöðva mikilvægustu atvinnuuppbyggingu landsins. Það má að þeirra mati ekki nýta auðlyndir landsins í annað en að sýna ferðamönnum fjallagrös og hundasúrur og selja þeim síðan grænmetisrétti uppá örævum.
Það er til skammar fyrir land og þjóð að hér skuli finnast fætækt. En það er ekki lausn á þeim vanda að stöðva atvinnuuppbyggingu þjóðarinnar. Við eigum að nýta auðlyndir okkar og ein aðferð við það þarf ekki að hindra að aðrar aðferðir séu notaðar.
Ég er alla vega alveg handviss um að ég mun ekki kjósa Vinstri græn!





Recent Comments