Vinir mínir gera stundum góðlátlegt grín að því að það sé alltaf besta veður á þeim stað sem ég bý á. Það hefir svolítið fylgt mér að vera ánægður með mitt. Og það er ég. Ég er mjög lífsglaður og hef eignast þann ríkidóm í lífinu að vera sáttur með mitt. Mér datt í hug að miðla þessu með ykkur og láta hér fylgja spakmæli dagsins. Þar vitna ég í Benjamin Franklin fyrrverandi forseta Bandaríkjanna sem sagði einu sinni:
Ánægja gerir fátækan mann ríkan
Óánægja gerir ríkan mann fátækan.
Njótið þessa góða dags. Hann er Guðs gjöf til okkar.
Recent Comments