Við feðgarnir horfðum saman á The Passion of the Christ í gærkvöldi. Þetta er alveg mögnuð mynd sem sýnir á raunverulegan hátt hvaða þjáningar Jesús leið þennan merkilegasta föstudag allra tíma. Þeir sem vel til þekkja vilja reyndar meina að Mel Gibson hafi frekar en hitt látið pintingarnar sem Jesús leið líta betur út en raunin var. Hvort sem það er rétt eða ekki fannst mér meðferðina á frelsara mínum óhugnanleg. Og hugsið ykkur þetta; allan tíman hefði hann getað stöðvað þetta ferli ef hann hefði ekki elskað þig og mig jafnmikið og hann gerir. Við getum öll sagt það sama og býr í mínu hjarta í dag: HANN GERÐI ÞAÐ ALLT FYRIR MIG!
Ég er svo þakklátur Guði fyrir að hann skuli elska mig bara eins og ég er. Ég er líka svo þakklátur Guði fyrir að hann skuli elska mig nógu mikið til að láta mig ekki halda áfram að vera eins og ég er. Hann vinnur að framförum mínum á hverjum einsta degi. Þar þarf ég ekkert að gera annað en að leyfa honum að stjórna gerðum mínum og hugsunum.
Það eru enginn takmörk fyrir því hversu heitt Jesús elskar þig. Leyfðu honum að sýna þér hvers hann er máttugur.
Njóttu þessa góða dags. Hann er Guðs gjöf til þin.
Recent Comments